MOOD

Láttu skapið ráða!

Hollur matur og drykkur sem passar við skapið

Fjölskylda opnar MOOD box saman í stofunni

Hvernig líður þér í dag?

Glaður, þreyttur, pirraður eða leiður?

Það getur verið erfitt að ákveða hvað manni langar í matinn. Með MOOD máttu alveg slökkva á heilanum, það eina sem þú þarft að gera er að velja skapið og við sjáum um restina.

MOOD er fyrirtæki sem býr til sérstök box sem tengjast skapi fólks. Þú getur valið á milli drykkjar og matarboxa og getur valið milli nokkurra valkosta sem eru sérgerðir fyrir mismunandi tilfinningar. Til dæmis getur þú valið box eftir því hvort þú sért glaður, stressaður, leiður eða þreyttur og við skilum mat eða drykk til þín. Hugmyndin er að hafa þetta í búðum eins og Krónunni og Bónus og svo seinna bjóða upp á heimsendingarþjónustu, jafnvel okkar eigin vefsíðu. Við viljum tryggja það að hver sem er getur fengið sér MOOD-box, óháð skapi. Ef fólk er undir miklu álagi í vinnu þá hefur það ekki tök á því að fara í búðina og myndi frekar vilja fá heimsent og öfugt. MOOD er ekki bara fyrirtæki sem selur mat og drykki, við viljum skila upplifun sem tengist tilfinningum fólks og er persónulegra en önnur fyrirtæki.

Fyrir erfiða daga og/eða góðar stundir

MOOD er ætlað ungmennum í skóla eða fólki sem vinnur mikið undir álagi og hefur ekki tíma til að hugsa út í næringu og vill þar af leiðandi heimsendingu eða snöggt pickup í næstu verslun. Þetta er fullkomið fyrir fólk sem er tæpt á tíma og þarf eitthvað fljótlegt en gott. Þetta væri líka frábær valkostur fyrir fjölskyldur sem geta ekki náð saman um hvað á að vera í matinn, þá velja þau bara skap og málið dautt!

Við viljum sérsníða vöruna okkar að hverjum og einum. Þess vegna myndum við fá þig til þess að segja okkur hvað þér finnst gott og vont þannig að þú fáir bara það sem þér finnst gott. Þá getur þú farið í appið okkar eða vefsíðuna og fengið mat og/eða drykk sem þú elskar í heimsendingu.

Okkar markmið er að fólk hættir að hugsa um mat og eldun sem eitthvað tímafrekt og leiðilegt og byrjar að hlakka til. Við viljum að það breytist í goða samveru í staðinn fyrir aukið stress og álag. Við viljum að fólk tengi góðar tilfinningar eins og ró, skemmtilegar stundir og þægindi, við MOOD og hlakki til að versla við okkur. Með því að hlusta á viðskiptavininna okkar þá getum við auðveldlega náð því og gert upplifunina enn persónulegri. Síðan væri hægt að sérsniða box eftir árstíðum, til dæmis jólabox, páskabox, osfrv.

Hugmyndin er einföld; minna stress, meiri gleði!

Við komum til þín

Eins og við nefndum áður fyrr, þá viljum við seinna meir bjóða upp á heimsendingu í gegnum annað hvort Wolt eða okkar eigin vefsíðu til að auðvelda líf fólks aðeins meira. Við byrjum á því að senda vöruna okkar í Krónuna og Bónus og sjáum til hvernig það þróast. Við myndum byrja á höfuðborgarsvæðinu og ef það gengur sjúklega vel þá víkkum við svæðið. Sama með heimsendinguna, byrja á höfuðborgarsvæðinu og síðan allt landið.

Veldu skapið þitt

Sjáðu hvaða matar- og drykkjarbox passar við skapið þitt í dag.

Matarboxin okkar

Það getur verið erfitt að ákveða hvað maður vill borða, sérstaklega þegar maður hefur nóg annað að hugsa um. Með MOOD matarboxinu þarftu ekki lengur að velta fyrir þér. Þú velur bara hvernig þér líður og við sjáum um restina.

MOOD matarboxið er hannað með mismunandi tilfinningum í huga. Hvert box hefur sitt eigið útlit, bragð og stemmningu sem passar við tilfinninguna þína.

ÞITT SKAP. ÞITT BOX. ÞÍN UPPLIFUN

MOOD matarboxið snýst ekki bara um mat. Það snýst um að gera daginn aðeins betri og matarupplifunina persónulegri.

Drykkjarboxin okkar

Hin varan sem við bjóðum upp á eru drykkir í sama stíl. Þú gætir farið í appið og valið hvernig þér líður og fá drykk sem passar við skapið. Við myndum bjóða upp á drykki fyrir sömu tilfinningar og matarboxin: gleði, reiði, sorg, stress, ást og þreytu. Þessi box geta verið frábær með matarboxunum eða bara ein og sér.

Kombó — matar- og drykkjarbox saman

Fáðu bæði matar- og drykkjarboxið í sama skapi saman í einum pakka, á betra verði en sitt í hvoru lagi.